Curly Sue
Þegar ég var lítil áttu systur mínar það til að kalla mig Curly Sue þegar ég hafði verið úti í rigningu og kom inn því að hárið á mér varð mjög krullað og þeim fannst það minna á stelpuna sem lék Curly Sue í einni mynd.


Þegar ég var lítil áttu systur mínar það til að kalla mig Curly Sue þegar ég hafði verið úti í rigningu og kom inn því að hárið á mér varð mjög krullað og þeim fannst það minna á stelpuna sem lék Curly Sue í einni mynd.
Jæja núna er liðin vika síðan ég kom heim og komin tími á að ég skrifi ferðasöguna. Var að spá að hafa þetta í tveim pörtum en svo hætti ég við. En hérna er sagan svolítið löng ennnnn:
Ég í Vinales-dalnum
Á miðvikudeginum var svo farið á markaðinn í Havana, hann er þekktur fyrir það að selja mikið af sjúklega flottum málverkum, ég keypti mér einmitt 2 lítil þar. Sé eftir að hafa ekki keypt mér fleiri en ég hélt að það væri hægt að kaupa þau líka í Varadero en svo var ekki.
Fimmtudagurinn var svo tekinn í afslöppun, legið í sólbaði allan daginn og leit ég út eftir því um kvöldið, ég sem sagt skaðbrenndist. Fórum svo um kvöldið til Havana og yfir í virki sem var á tanga “hinum meginn við Havana”. Mættum frekar seint og það var búið að loka vitanum sem við ætluðum að skoða en einn starfsmaður var svo elskulegur að hleypa okkur í gegn og fengum við því að skoða útsýnið frá honum. (reyndar bara ég og pabbi því að Hildur og mamma þorðu ekki). Svo fórum við og horfðum á sýninug þar sem var skotið úr fallbyssu klukkan 9 en það var víst siður í gamladaga að skjóta úr fallbyssu þegar loka átti höfninni. Á endanum varð ég sýninginn þar sem það leið yfir mig nánast um leið og búið var að skjóta úr byssunni. Það var frekar óskemmtilegt þar sem ég rankaði við mér og allir voru að horfa á mig, ekki alveg mitt uppáhalds. Við ætluðum að fara út að borða en læknirinn á staðnum sagði að ég ætti að fara beint uppá hótel og fá mér að borða og borða mikinn sykur, ekki vandamál fyrir mig!
Laugardagurinn var svo tekinn í hvíld.
Á sunnudeginum var svo farið til Varadero, urðum fyrir frekar miklum vonbrigðum þegar þangað var komið, hótelið var í svo miklu lægri klassa en hótelið í Havana. En það þýddi ekkert að pirra sig á því, bara njóta ferðarinnar eins og maður gat. Þar fengum við band um hendina og voru allir drykkir og matur frír á hótelinu.
Auðvitað kom páskahérinn með Nóa Siríus páskaegg handa liðinu.
Gerðum miklu minnar þar en í Havana, minna hægt að skoða. En við fórum á hjólabát, fórum í útsýninsrútu, gengum á ströndinni sem var æði, gengum um bæinn og stunduðum pizza staðinn á horninu vilt og galið. Vorum nefnilega ekki að fíla matinn á hótelinu nema kannski mexíkanska.
Á miðvikudegi fór að hellirigna einmitt þegar við vorum að borða á pizza staðnum, við ætluðum bara að bíða eftir því að rigning myndi hætta en sem betur fer gerðum við það ekki, annars hefðum við þurft að sitja þar allan daginn. Það ringdi svo mikið að rafmagnið var ekki á hótelinu nánast allan daginn og við þurftum að borða við kertaljós á mexíkanska veitingarstaðnum um kvöldið, svo kláraðist líka allur maturinn þar sem auðvitað var ekki hægt að elda meira sökum rafmagnsleysi.
Á mexíkanska staðnum á meðan rafmagnið var á.
Á fimmtudeginum fórum við svo í sólarsiglingu, sigldum í um klukkutíma og þá var stoppað til að snorkla, svo heimsóttum við Hvítu eyjuna og þar var borðar. Ótrúlega flott eyja. Svo þegar við vorum að fara frá eyjunni byrjaði að rigna og það var sko ekkert smá ræði og það voru þrumur og eldingar alveg við bátinn og mér var ekki farið að standa á saman þar sem það sást heldur ekkert mikið út fyrir bátinn. En við komumst heil á land og þetta gerði bara ferðina eftirminnilegri. Kíktum svo á stutta höfrungasýningu, fyrsta siptið sem ég fór á svoleiðis.