Hér bloggar Berglind of Wales

föstudagur, júní 22, 2007

Valkvíði

Ég get sagt að ég sé með valkvíða þessa stundina, er að versla mér gleraugu og ég get ómögulega valið milli þriggja gleraugna. Fór í búðina í gær og kom heim með fjórar spangir því að ég ætlaði að melta þetta. En núna er ég engu nær, er búin að fá álit hjá fólki í vinnunni en þau skiptust eiginlega jafnt á það að finnast tvenn gleraugu flottust. Já mér finnst ekkert smá flókið að ákveða hvaða gleraugu ég eigi að kaupa, hvernig á ég að finna mér íbúð!!!
Annars er mín að fara á djammið næstu tvo daga, stelpupartý í kvöld og svo vinnupartý á morgun. Ég sé til hvort að ég drekki í kvöld, hef aldrei verið mikil drykkjumanneskja, en það kemur í ljós.

Góða helgi,

Berglind óákveðna.

4 Comments:

At 4:03 e.h., Blogger hrundher said...

Ég veit hvernig þú velur íbúð. Ég skoða þær með þér og vel þá sem mér líst best á. Þitt álit skiptir engu.
Múhahahaha....

 
At 7:56 f.h., Blogger Berglind said...

Takk Hrund, en nei takk ;)

 
At 6:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hvenær koma myndirnar frá djamminu um daginn?!! ;)
kv. Herdís

 
At 9:00 f.h., Blogger Berglind said...

Hæ, ég veit ekki, netið er búið að vera í ólagi heima þannig að ég hef ekkert getað sett þær inn.

 

Skrifa ummæli

<< Home