Hér bloggar Berglind of Wales

þriðjudagur, nóvember 18, 2008

Óþolandi

Pirringur minn er á hæðasta stigi núna. Kom heim eftir bootcamp og tók þá eftir því að í einu herberginu er búið að leka rosalega mikið. Búið að vera galli sem ég hélt að það væri búið að laga en greinilega ekki. Búnar að myndast fleiri vatnsbólur og leka meira niður á gólf. Arrrg ég er svo fúl, svo ákvað ég að kíkja inní stofu því að þar eru líka búnar að vera skemmdir sem á ennþá eftir að laga en það virtist ekki vera neitt meira þar. En þá var mér litið að öðrum glugga sem hafði alltaf verið í lagi. Og viti menn þar var komin þessi fína vatnsbóla. Þannig að núna er ég búin að líma handklæði við vegginn og setja á gólfið svo að parketið eyðileggist ekki meira. Versta er að ég er svo stressuð um það að þetta geri eitthvað slæmt fyrir rafmagnið, þar sem á 2 stöðum lekur vatnið beint niður í rafmangsdós (eða hvað þetta nú heitir). Já gaman að kaupa sér nýja íbúð!!!

Annars er ég ekki að komast yfir þetta hvað fólk er alltaf að dreyma mig ólétta. Ég er farin að hafa áhyggjur af þessu. Getur það þýtt að ég muni bara aldrei eignast börn??? Líst ekkert alltof vel á það. Maður hafði nú alltaf hugsað sér að eignast börn í framtíðinni þó svo að sumum finnist ég ekkert alltof móðurleg. Tja maður spyr sig!!

Seinna,
Berglind pirraða.

2 Comments:

At 9:20 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Iss Berglind, þú ert nú svo ung ennþá. Hérna í Sverige byrjar fólk ekki að eiga börn fyrr en 30ogeitthvað ára þannig að þú hefur nægan tíma. Ég er alveg viss um að sá sem á eftir að koma að laga lekann í íbúðinn hjá þér verði svaka hönk og þú heillar hann upp úr skónum:-)

Kolla frænka

 
At 5:55 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já ég er sammála Kollu. Það á einhver hönk eftir að koma og laga þeta hjá þér. Já og fara setja inn fleiri myndir:-)
Kv.Hafdís frænka.

 

Skrifa ummæli

<< Home